Auglýsingakerfi Facebook og Instagram

  • Lærðu að ná meiri árangri með auglýsingum á Facebook og Instagram. Þátttakendur öðlast hagnýta þekkingu á að beita auglýsingakerfi Facebook og djúpan skilning á öllum þeim eiginleikum sem auglýsingakerfið býður uppá.

    Auglýsingakerfi Facebook gerir okkur kleift að birta auglýsingar á Facebook, Instagram, Messenger og á miklum fjölda vefsíðna og appa um allan heim (t.a.m.  Tinder).

    Þátttakendur læra að nota auglýsingakerfið rétt svo þeir nái meiri árangri fyrir minna fjármagn.

    Fyrir hverja:
    Framkvæmdastjóra, markaðsstjóra, vörumerkjastjóra og aðra stjórnendur og starfsmenn sem koma að stjórnun markaðsmála og vilja efla færni sína og þekkingu við notkun Facebook/Instagram auglýsingakerfisins.

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is

  • Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri Datera, sem sérhæfir sig í gagnadrifnum og sjálfvirkum markaðssamskiptum. Fáir hafa jafn mikla reynslu og þekkingu og Tryggvi á markaðssetningu á netinu en hann hefur séð um stafrænar herferðir fyrir mörg stærstu og framsæknustu fyrirtæki Íslands, af öllum stærðum og í nánast öllum atvinnugreinum.

  • Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:
    Hvernig hægt er að ná meiri árangri fyrir minna fjármagn með auglýsingakerfi Facebook og Instagram.

    Hvernig hægt er að búa til öflugri markhópa bæði með því að nota Audience Insight og eigin gögn.

    Hvernig Ad manager virkar.

    Hvernig hægt er að sjálfvirknivæða auglýsingar svo kerfið framleiði jafnvel hundruð mismunandi samsetningar af auglýsingum, fyrir mismunandi markhópa, með algrímu Facebook.

    Hvernig hægt er að tengja auglýsingakerfi Facebook við vefverslanir og sjálfvirknivæða auglýsingar.

    Hvernig Facebook Pixel virkar og hvernig hægt er að nota hann til að ná meiri árangri með Facebook auglýsingum og gera betri greiningar með Analytics hluta Business Manager.

    Hvernig við getum búið til betri Facebook og Instagram auglýsingar með myndum og texta sem skila meiri árangri.

  • Fjarnám alltaf í boði, byrjað að læra núna!
    Námið er í 14 hlutum og tæplega 5 klst. langt.

    Þátttakendur hafa 12 mánuði til að læra og geta horft eins oft og þeir skjósa á tímabilinu.

    Verð: 24.000 

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi.
    Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is)

 

Leita