Tölvuárásir eru að verða algengari á Íslandi. Netöryggi skiptir alla máli, bæði okkur sem einstaklinga og sem starfsmenn fyrirtækja og stofnana. Snertifletir tölvuglæpa eru mun fleiri en flesta grunar og þess vegna þurfa fyrirtæki að setja netöryggi á dagskrá. Fræðslan má ekki eingöngu ná til stjórnenda eða vera á ábyrgð tölvudeilda. Hún þarf að ná til allra starfsmanna.
Flest innbrot á Íslandi eru vegna þess að starfsmenn eru ekki meðvitaðir um áhættuna. Á tímum Covid eru margir að vinna að heiman sem eykur enn frekar hættuna.
Námskeiðinu er ætlað að hjálpa öllum starfsmönnum að varast helstu netöryggishættur sem hafa herjað á íslensk fyrirtæki og stofnanir undanfarin ár.
Námskeiðið er einnig í boði á sérkjörum fyrir fyrirtæki og stofnanir, þá aðgengilegt fyrir alla starfsmenn í gegnum netið en jafnframt sem nám inni í kennslukerfi fyrirtækja (sbr. Eloomi). Hafið samband fyrir nánari upplýsingar gudmundur@akademias.is.
Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is
Vilhelm Gauti Bergsveinsson, yfirmaður netöryggisþjónustu hjá Deloitte Íslandi.
Á námskeiðinu er m.a. fjallað um: Námskeiðið er rúmlega klukkustunda langt og í sex hlutum.
- Hvað er netöryggi? - Veiðipóstar (e. phising) - Öryggi lykilorða - Raunlægt öryggi - Samskiptablekkingar - Að vinna utan vinnustaðar
Fjarnám alltaf í boði, byrjað að læra núna! Opið fjarnámskeið, hægt að byrjað að læra hvenær sem er.
Verð 19.900.
Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi.
Flest fyrirtæki geta jafnframt sótt styrk frá Starfsmenntunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði við námið fyrir alla starfsmenn, óháð inneign starfsmannanna sjálfra í starfsmenntunarsjóði, sjá nánar á www.attin.is.