Vakinn - eflum starfsandann

  • Hvatning, streitustjórnun og betri svefn 

    Vakinn inniheldur áfanga um hvatningu, streitustjórnun og betri svefn. Námið er hannað með það að markmiði að undirbúa fólk til að takast á við erfiða tíma.

    Það er nauðsynlegt að halda jákvæðu hugarfari og virkni þrátt fyrir að upplifa óvissu og erfiðleika í þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Hætta er á auknum streitueinkennum og kulnun og er því mikilvægt að vita hvernig á að bregðast við til þess að stýra áhrifum og snúa neikvæðri þróun yfir í styrkleika og tækifæri. Góður svefn er svo undirstaða alls annars og þá er skilningur á því hvernig hægt er að bæta svefninn grundvallaratriði í uppbyggingu á jákvæðu hugarfari og aukinni virkni.

    Magnús Scheving, Helga Hrönn Óladóttir og Erla Björnsdóttir leiða umræðuna í þessum áföngum með því að hjálpa til við að byggja upp einstaklinga og starfsmenn fyrirtækja fyrir tækifæri framtíðarinnar.

    Fyrirtæki hafa séð tækifæri í að efla starfsanda á erfiðum tímum með því að veita starfmönnum aðgang að náminu.

    Fyrir hverja:

    Námið er fyrir alla þá sem vilja byggja sig og sitt starfsfólk upp fyrir betri tíma. Námið er sértaklega hannað með það í huga að efla starfsmenn og starfsanda hjá fyrirtækjum. 

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is,

  • Magnús Scheving, frumkvöðull og sérfræðingur í virkni, Helga Hrönn Óladóttir, sérfræðingur hjá Streituskólanum, og dr. Erla Björnsdóttir, sérfræðingur í svefnrannsóknum, í samvinnu við Akademias.


  • Námið er tæplega þrjár klukkustundir, skipt upp í þrjá áfanga í 11 köflum.   

    - Hvatning og virkni- Magnús Scheving, frumkvöðull og sérfræðingur í virkni

    - Streitustjórnun-  Helga Hrönn Óladóttir, sérfræðingur hjá Streituskólanum

    - Betri svefn- dr. Erla Björnsdóttir sérfræðingur í svefnrannsóknum


  • Opið fjarnámskeið, hægt að byrjað að læra hvenær sem er.

    Verð 29.900 fyrir einstaklinga.

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi.

    Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi.

    Námskeiðið er einnig í boði á sérkjörum fyrir fyrirtæki og stofnanir, þá aðgengilegt fyrir alla starfsmenn í gegnum netið en jafnframt sem nám inni í kennslukerfi fyrirtækja (sbr. Eloomi). Verð 240.000 kr. Hafið samband fyrir nánari upplýsingar gudmundur@akademias.is.

    Flest fyrirtæki geta jafnframt sótt styrk frá Starfsmennunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði við námið fyrir alla starfsmenn, óháð inneign starfsmannanna sjálfra í starfsmenntunarsjóði, sjá nánar á www.attin.is. 




Leita