miniMBA: Fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun

  • Í fyrsta skipti á Íslandi er boðið upp á miniMBA, með áherslu á viðskipti við Kínverja, samfélagsmiðla og samskiptatækni. Námið er samstarfsverkefni fjölda sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja að Íslendingar nýti sér tækifærið sem felst í viðskiptum við Kínverja, hvort sem er á Íslandi eða í Kína. Kína er orðið leiðandi stórveldi í alþjóðlegum viðskiptum og kaupmáttur Kínverja hefur aukist verulega á undanförnum árum sem hefur ýtt undir ferðalög og neyslu á vörum og þjónustu frá Vesturlöndum.

    Umsjónarmenn eru dr. Eyþór Ívar Jónsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson. Guðmundur hefur verið markaðsstjóri m.a. Nova, WOW air og hjá Icelandair, ásamt því að vera í framkvæmdastjórn Nova og WOW air. Hann hefur ennfremur verið markaðsráðgjafi við fjölda íslenskra fyrirtækja  og kennt markaðsmál við íslenska háskóla. Guðmundur hefur unnið mikið í alþjóðlegu markaðsstarfi. Eyþór Ívar Jónsson, einn reyndasti MBA kennari Norðurlandanna sem hefur verið leiðandi í MBA náminu í Copenhagen Business School í fimmtán ár og kennt MBA við fjölda háskóla. Eyþór hefur m.a. kennt við háskóla í Austurlöndum og þjálfað fjölda Kínverja í alþjóðaviðskiptum.  

    miniMBA með áherslu á tækifæri Kína og stafræn viðskipti snýst um að skapa þekkingu, færni og leikni sem tengist því að eiga árangursrík og skilvirk viðskipti við Kínverja hvor sem er sem viðskiptavinir á Íslandi eða í Kína. Ennfremur að kunna á samskiptakerfi og tækni sem að skilar árangurríkri markaðsinngöngu og samskiptum við viðskiptavini. miniMBA er fyrir fólk í einkageiranum, hjá hinu opinbera eða í þriðja geiranum sem vill skapa verðmæti fyrir Kínverja og aðra Austurlandabúa og byggja upp samvinnu og samskipti sem skila sér í árangursríkum viðskiptum. Í miniMBA lærir fólk um kínverska menningu og neytendur, inngöngu á nýja markaði, samfélagsmiðla og samskiptatækni, samstarfsaðilia og dreifileiðir og alþjóðlegt viðskiptaumhverfi.

    Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum við sérfræðinga. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni, lausn vandamála og greiningu tækifæra, gagnrýna- og skapandi hugsun.

  • Kínversk menning og neytendur
    
Kína nútímans

    Kauphegðun

    Kínverskir ferðamenn

    Kínversk fyrirtækjamenning

    Innganga á nýja markaði
    
Tenging vöru og viðskiptavinar

    Inngönguleiðir á markað
    
Verðlagning

    Inngönguáætlun

    Samfélagsmiðlar og samskiptatækni
    
Stafrænn heimur austurlanda

    Samskiptaforrit

    Traust og sýnileiki

    Samskiptatækni

    Samstarfsaðilar og dreifileiðir
    
Kínverskir samstarfsaðilar

    Alibaba og aðrar dreifileiðir
    
Samningar og samningatækni
    
Stjórnun markaðsstarfs

    Alþjóðlegt viðskiptaumhverfi
    
Stökkbreytingar í alþjóðlegum viðskiptum
    
Gjaldeyrir og greiðslumátar

    Lög og reglur í viðskiptum
    Alþjóðleg vaxtarfyrirtæki í Kína


  • Leiðbeinendur námsins eru sérfræðingar í viðskiptum við Kínverja, samskiptatækni og inngöngu á markaði. Hver áfangi hefur á bilinu 2 til 3 leiðbeinendur sem segja frá eigin reynslu og raundæmum.

    Guðlaugur Þór Þórðarson – Utanríkisráðherra Íslands
    Jin Zhijian – Sendiherra Kína á Íslandi
    Chen Guisheng – Viðskiptafulltrúi sendiráðs Kína á Íslandi
    Petur Li Yang – Viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Beijing
    John Clark – Yfirmaður Tencent í Evrópu
    Kjeld Erik Brodsgaard - Prófessor við Copenhagen Business School
    Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir – Aðstoðarframkvæmdastjóri Carbon Recycling International
    Ársæll Harðarson – Svæðisstjóri hjá Icelandair
    Bjarni Ármannsson – Framkvæmdastjóri Iceland Seafood International
    Björn Örvar Lárusson – Stofnandi og CSO hjá Orf Genetics
    Meiting Quin – Nordic-China Startup Forum
    Danielle Neben – Markaðsstjóri ePassi Iceland
    Ólafur Stephensen – Framkvæmdastjóri íslensk-kínverska viðskiptaráðsins
    Ásta Kristín Sigurjónsdóttir – Framkvæmdastjóri Ferðaklasans á Íslandi
    Haukur Harðarson – Stofnandi Arctic Green Energy
    Guðmundur Arnar Guðmundsson – Akademias og fv. markaðsstjóri t.a.m. WOW air, Nova og hjá Icelandair
    Eyþór Ívar Jónsson – Copenhagen Business School
    Sarah Chu – Nordic Business House 

  • Næsta námskeið hefst 7. apríl 2021. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum í 5 vikur.

    Kennsla fer fram hjá Akademias í Borgartúni 23, 3 hæð. 

    Námið er í boði sem staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. Námið er 40 klst., 5 áfangar, 7 klst. hver áfangi og próf. 

    Námsmat: Einstaklingsverkefni, hópverkefni og heimapróf.

    Námsgjöld: 390.000 kr. Snemmskráningartilboð, takmarkaður sætafjöldi: 290.000 kr. 

    Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum gudmundur@akademias.is.

Leita