miniMBA: Leiðtoginn og stafræn umbreyting

  • Námið er samstarfsverkefni fjölda sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja tryggja að Ísland verði í farabroddi þegar kemur að stafrænni umbreytingu atvinnulífs, hins opinbera og þriðja geirans. Námið tekur jafnframt mið að því sem er að gerast í þróun á alþjóðlegu MBA og mini MBA námi.

    Umsjónarmaður er dr. Eyþór Ívar Jónsson, einn reyndasti MBA kennari Norðurlandanna sem hefur verið leiðandi í MBA náminu í Copenhagen Business School í fimmtán ár og kennt MBA við fjölda háskóla ásamt því sem hann er Vice President (frá júní 2020) fyrir European Academy of Management sem er samstarfsvettvangur 50 háskóla.

    Leiðbeinendur námsins eru 10 – 15 talsins sem eru sérfræðingar í stjórnun fyrirtækja, verkefnastjórnun og stafrænni umbreytingu. Hver áfangi hefur á bilinu 2 – 3 leiðbeinendur sem segja frá eigin reynslu og raundæmum.

    miniMBA snýst um að skapa þekkingu, færni og leikni sem tengist stafrænni umbreytingu fyrirtækja, hins opinbera og þriðja geirans. Í miniMBA lærir fólk að skipuleggja stafræna umbreytingu, stjórna í krafti upplýsinga, að byggja upp ofurteymi, að nýta tækni í stefnumótun og fyrir framtíðarsýn og að skapa verðmæti í stafrænum heimi.

    Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum sérfræðinga.
  • Stafræn umbreyting
    Grundvallaratriði 4. iðnbyltingarinnar
    Tæknilæsi – RPA, AI o CT
    Arkitektúr skýjalausna
    Hvernig á að stýra stafrænum breytingum

    Upplýsingadrifin stjórnun
    Árangursstjórnun fyrir framtíðina
    Eðli upplýsinga og viðskiptagreind
    Þjónustustjórnun í stafrænum heimi
    Big-Data á tímum gervigreindar

    Ofurteymi í fjarvinnu
    Stefnumótandi agile aðferðafræði
    TEAM módelið
    Draumar og drifkraftar fyrirtækis
    Leiðtogi teymis

    Tækni og framtíðarsýn
    Stafræn þekking í markaðsmálum
    Notkun á Tölvutungumálum (cloud computing, quantum computing o.fl.)
    Framtíðarsýn í stafrænum heimi
    Áhrif tæknibreytinga

    Stafræn verðmætasköpun
    Að leiða með nýsköpun
    Fyrirtæki sem stafrænn leiðtogi
    Drifkraftar verðmætasköpunar
    Viðskiptavinur sem miðpunktur

  • Stefán Baxter, CTO and Founder at Smart Data & Analytics inc.
    Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, fyrrum Learning And Development Specialist Spotify
    Jón Helgi Egilsson,Stofnandi og stjórnarformaður Monerium
    Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID og áður DataMarket
    Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs Íslandspósts
    Guðbergur Geir Erlendsson, Engineering Manager Tinder US
    Jóhann Ari Lárusson, Vice President of Data Science - AI Products & Solutions, Pearson US
    Tómas Ingason, CIO Icelandair, áður t.d. Director Rapid Digitization Arion banki og ráðgjafi hjá Bain & Company
    Magnús Árnason, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar Nova
    Brynjólfur Borgar Jónsson, framkvæmdastjóri Datalab
    Ragnheiður H. Magnúsdóttir, formaður tækninefndar Vísinda og tækniráðs og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Veitum
    Þóranna Kristín Jónsdóttir, Markaðs-og kynningarstjóri hjá SVÞ, metsöluhöfundur og sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
    Guðmundur Arnar Guðmundsson, Akademias
    Ágúst Einarsson, stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Tempo
    Fjóla María Ágústsdóttir, breytingastjóri stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitafélaga

    * Leiðbeinendur námsins eru um 15 talsins en listinn er birtur með fyrirvara um breytingar.
  • Næsta námskeið byrjar 27. janúar 2021. Kennt á miðvikudögum 13:00 – 16:00 og fimmtudögum 9:00 – 12:00 í 5 vikur.

    Kennsla fer fram hjá Akademias í Borgartúni 23, 3 hæð. Námið er í boði sem staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.

    Námið er 40 klst., þ.e. 5 áfangar, 8 klst. hver áfangi.

    Námsmat: Einstaklingsverkefni, hópverkefni og heimapróf.

    Námsgjöld: 390.000 kr. Snemmskráningartilboð núna 340.000 kr.

    Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum gudmundur@akademias.is./li>

Leita