Leiðtogi
Hraðþróun viðskiptahugmynda
3 vikur · 18 klst.
Kennt af sérfræðingum úr atvinnulífinu
Sérfræðingar námsins
Reynsla sem nýtist í raun.

Þórarinn Hjálmarsson
Forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðsluAkademias
Meira
Er með MS gráðu í viðskiptafræði þar sem áhersla mín er á markaðsfræði. Hef síðastliðin ár hlaðið mig upp í gervigreindina.
Um námið
Í atvinnulífi samtímans er hæfileikinn til að koma hugmynd í framkvæmd og prófa hana á markaði orðinn mikilvægt samkeppnisforskot stjórnenda og sérfræðinga.
Námskeiðið Hraðþróun viðskiptahugmynda er hagnýtt og verklegt námskeið fyrir þá sem vilja fara hratt frá hugmynd að prófanlegri lausn. Þátttakendur læra að nota gervigreind, no-code veflausnir og sjálfvirk vinnuflæði til að móta, prófa og þróa nýjar viðskiptahugmyndir.
Á námskeiðinu er unnið með raunverulegt verkefni frá upphafi til enda. Markmiðið er að þátttakendur ljúki námskeiðinu með skýrari viðskiptahugmynd, virka frumgerð og fyrstu skrefin í átt að raunverulegri markaðsprófun.
Ekki er krafist sérhæfðrar forritunarkunnáttu.
Fyrir hverja
Hæfniviðmið
Þú lærir að…
greint raunverulegar þarfir, markaðstækifæri og samkeppnisumhverfi með aðstoð gervigreindar
hannað og prófað viðskiptahugmynd áður en ráðist er í umfangsmikla þróun
smíðað lendingarsíður og einföld notendaviðmót með no-code verkfærum
byggt virka frumgerð eða MVP án hefðbundinnar forritunar
sett upp sjálfvirk vinnuflæði fyrir skráningar, samskipti og afhendingu
mótað einfaldan rekstrar- og greiðsluramma utan um verkefnið

Nám sem passar inn í lífið
Vertu með í salnum eða taktu þátt í beinni — þú missir ekki úr.
Staðnám í Borgartúni
Taktu virkan þátt í kennslustund, umræðum og verkefnavinnu með kennurum og samnemendum.
Fjarnám í beinni
Tengstu kennslustundinni í rauntíma og taktu þátt óháð staðsetningu.
Horfðu aftur eða bættu upp kennslustund í Teachable.
Algengar spurningar
Gott að vita áður en þú skráir þig.
Get ég tekið þátt í fjarnámi?
Já. Þú getur tekið þátt í kennslunni í beinni óháð staðsetningu.
Fylgja upptökur með?
Já. Upptökur eru aðgengilegar í Teachable samkvæmt upplýsingum námskeiðsins.
Er hægt að sækja um styrk?
Mörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir veita styrki. Kynntu þér reglur hjá þínu félagi.
Leiðtogi
Hraðþróun viðskiptahugmynda
Næsta lota hefst 04.11.2026.