{"product_id":"rett-likamsbeiting-i-monnunarstorfum","title":"Rétt líkamsbeiting í umönnunarstörfum","description":"\u003cp\u003eUm hvað er námskeiðið \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðið veitir starfsfólki einfaldar og hagnýtar leiðir til að nota líkamann á skynsamlegan hátt, minnka óþarfa álag og styðja við öruggari umönnun. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMarkmið námskeiðsins er m.a. að nemandi \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eskilji hvað felst í réttri líkamsbeitingu og orkusparandi vinnuaðferðum \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003egeti nýtt G.O.L.F. aðferðina við undirbúning og framkvæmd verkefna \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eþekki grunnreglur um stöðuga fótstöðu, nálægð við verkefnið og kraft frá fótunum \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003egeti valið vinnustöðu sem hentar verkefninu og dregið úr óþarfa álagi \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eskilji mikilvægi hjálpartækja, samvinnu og virkrar þátttöku skjólstæðings \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003egeti tekið eftir merkjum líkamans og mótað venjur sem styðja við endurheimt og vellíðan \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrirkomulag \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðið er rafrænt og skiptist í átta stutta kafla. Hægt er að horfa á hvern kafla sérstaklega og rifja efnið upp eftir þörfum. Einfaldar útskýringar og verkleg sýnikennsla tengja fræðsluna beint við dagleg verkefni í umönnun. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLeiðbeinandi \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁsgerður Guðmundsdóttir er sjúkraþjálfari, íþróttakennari og jógakennari og með diplómu í jákvæðri sálfræði. Hún er framkvæmdastjóri Vinnuheilsu og hefur í um 25 ár unnið með fyrirtækjum og stofnunum að vinnuvistfræði, heilsueflingu og heilsuvernd á vinnustöðum. Hún hefur jafnframt haldið námskeið og fyrirlestra sem styðja við betri líðan í vinnu og draga úr stoðkerfisálagi. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrir hverja \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðið hentar starfsfólki sem sinnir umönnun, stuðningi og daglegri aðstoð. Það getur nýst bæði nýju og reynslumiklu starfsfólki á hjúkrunarheimilum, í heimaþjónustu, á heilbrigðisstofnunum og í félagsþjónustu. Efnið nýtist einnig stjórnendum og öðrum sem koma að öryggi, vinnuumhverfi og fræðslu starfsfólks. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHeildarlengd \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUm 20 mínútur \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003cbr\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðsefni \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e1 Hvað er rétt líkamsbeiting \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRétt líkamsbeiting, orkusparandi vinnuaðferðir og góðar vinnuvenjur í daglegri umönnun \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2 G.O.L.F. aðferðin \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGreining verkefnis, opið rými, líkaminn og fólkið sem tekur þátt. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e3 Hvað veldur álagi og meiðslum \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppsafnað álag, fyrstu merki líkamans og óhagstæðar eða endurteknar vinnustöður \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e4 Grunnreglur góðrar líkamsbeitingar \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndirbúningur, stöðug fótstaða, kraftur frá fótum, stefnubreytingar og samvinna við skjólstæðing \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e5 Vinnustöður \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFætur í axlarbreidd, beygja í hnjám, annar fótur fram, vinna á öðru eða báðum hnjám og notkun kolls eða stóls \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e6 Verkleg dæmi úr umönnun \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAðstoð í rúmi, uppstaða og seta, tilfærsla milli rúms og hjólastóls, ganga, klæðnaður og umhirða \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e7 Hjálpartæki og samvinna \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVal og notkun hjálpartækja, þekking á búnaði vinnustaðarins og örugg samvinna \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e8 Litlar breytingar stór áhrif \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTvær stutter og hagnýtar æfingar og samantekt \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Akademías","offers":[{"title":"10370109898998","offer_id":52018028413174,"sku":"10370109898998","price":24000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0492\/5135\/2743\/files\/16_9_Thumbnails_Rettlikamsbeitingiumonnunarstorfum.png?v=1792668441","url":"https:\/\/akademias.myshopify.com\/products\/rett-likamsbeiting-i-monnunarstorfum","provider":"Akademías","version":"1.0","type":"link"}