Hraðþróun viðskiptahugmynda

Í atvinnulífi samtímans er hæfileikinn til að koma hugmynd í framkvæmd og prófa hana á markaði orðinn mikilvægt samkeppnisforskot stjórnenda og sérfræðinga. Námskeiðið Hraðþróun viðskiptahugmynda er hagnýtt og verklegt námskeið fyrir þá sem vilja fara hratt frá hugmynd að prófanlegri lausn. Þátttakendur læra að nota gervigreind, no-code veflausnir og sjálfvirk vinnuflæði til að móta, prófa og þróa nýjar viðskiptahugmyndir. Á námskeiðinu er unnið með raunverulegt verkefni frá upphafi til enda. Markmiðið er að þátttakendur ljúki námskeiðinu með skýrari viðskiptahugmynd, virka frumgerð og fyrstu skrefin í átt að raunverulegri markaðsprófun. Ekki er krafist sérhæfðrar forritunarkunnáttu.

Leita