24.000 kr.
Námskeiðið fjallar um verkefni og verkefnastýringu á tímum fjarvinnu, sem hefur margaukist útaf sottlu.
Notað er fjarvinnutólið Microsoft Teams til að halda utan um alla þræði verkefnisins. Teams hefur mjög marga kosti og getur auðveldlega komið í staðinn fyrir samskiptaforrit og geymslustaði fyrir gögn.
Góður stjórnandi í fjarstýringu þarf á svona tóli að halda og kynntar eru leiðir til að viðhalda góðu sambandi samstarfsfólks í fjarvinnu.
Gefin er innsýn inn í heim [4DX aðferðafræðinnar](https://franklincovey.is/the-4-disciplines-of-execution "4DX aðferðafræðinnar") og hvernig innleiðing á breytingum getur hreyft við vinnustaðamenningu.
Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum sem vilja ná betri tökum á Teams, nýta fjarvinnu sem best og ná meiri árangri.
Guðný Halla Hauksdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Reykjavíkur og er með MBA frá Háskóla Íslands. Hún vinnur við upplifun þjónustu hjá Orkuveitu Reykjavíkur og vann lengi áður í fjarskiptageiranum. Í frístundum sínum dundar hún sér á fjöllum og ver miklum tíma í faðmi fjölskyldunnar.
akademias@akademias.is
Borgartún 23