Í fyrsta skipti á Íslandi er boðið uppá miniMBA í markaðsfræði með áherslu á vöxt fyrirtækja með vörumerkjastjórnun og stafrænu markaðsstarfi. Námið er samstarfsverkefni Akademias og danska markaðsráðgjafafyrirtækisins CO/PLUS.
Námið er í umsjón Guðmundar Arnars hjá Akademias, Gaute Høgh stofnanda og eiganda CO/PLUS og Helgu Þóru framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu. CO/PLUS er ráðgjafafyrirtæki sem staðfærir sig á milli stjórnendaráðgjafafyrirtækja og auglýsingastofa.
CO/PLUS hefur unnið með mörgum heimsþekktum vörumerkjum, ásamt fjölmörgum íslenskum. Sem dæmi: Arla, Bang & Olufsen, Lego, Novo Nordisk, Statoil, Malibu og Danona. Á Íslandi hefur það unnið með vörumerki eins og Ísey skyr, Össur, Icelandic, Lýsi, Nova og Bioeffect.
Guðmundur Arnar Guðmundsson frá Akademias hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air auk þess sat hann í framkvæmdastjórn félaganna. Ennfremur var hann markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi.
Leiðbeinendur námsins eru allt að 15 talsins, allir sérfræðingar í stjórnun fyrirtækja.
miniMBA snýst um að finna næsta sóknarfæri á markaði. Hjálpa fyrirtækjum að vera allt fyrir einhverja, en ekki eitthvað fyrir alla. Markmið námsins er að kynna þátttakendum nýjustu þekkingu á markaðsfræði og vörumerkjastjórnun. Þátttakendur fá þekkingu, færni og leikni í að greina markaði, móta stefnu og setja upp aðgerðaráætlun sem hjálpar fyrirtækjum að vaxa.
Innsæi, gögn og neytendahegðun Vörumerki og vörumerkjastjórnun Markaðsinnsæi, greining á neytendum og samkeppninni Hvernig finnum við réttu viðskiptavinina til að vaxa? Mælingar, markaðsrannsóknir og gögn
Mótun markaðsstefnu Aðgreining og auðkenning vörumerkja Vörumerkjasögur og snertifletir við viðskiptavini Staðfærsla - að þora að vera öðruvísi Markaðstrektir Samfélagsleg ábyrgð og markaðsstefna
Markaðsáætlanir og markaðsaðgerðir Markaðsaðgerðir með réttri dreifingu, verðlagningu og vörunni Markaðssamskipti með áherslu á gögn ,,Nudge" og atferlishagfræði til að auka virkni og ýta undir vöxt Hvernig ákveðum við fjármagn til markaðsmála? Samstarf við önnur vörumerki eða fræga einstaklinga (t.a.m. áhrifavaldar)
Einstök og minnistæð viðskiptavinaupplifun Upplifunarhagkerfið (e. The Experience Economy) Staðfærsla og upplifanir Ferðalag viðskiptavina Komast nær viðskiptavinum á einstaka vegu Vera meira en vörumerki
Markaðshermir og lokaverkefni Verkleg æfing í vörumerkjastjórnun í sýndarheim á netinu (hermir) Lokaverkefni - einstaklingsverkefni
Gaute Høgh, stofnandi og eigandi CO/PLUS Halldór Harðarson, markaðsstjóri Arion Banka Kevin Lane Keller, E. B. Osborn Professor of Marketing at the Tuck School of Business at Dartmouth College (fjarkennsla í beinni) Joseph Pine, The Experience Economy, co-founder Strategic Horizon (fjarkennsla í beinni) Eyrún Jónsdóttir, VP Publishing CCP Scott Bedbury, CEO, founder BrandStream. (áður markaðsstjóri Nike og Starbucks) Helga Þóra Eiðsdóttir, framkvæmdastjóri CO/PLUS Íslandi Gunnar B. Sigurgeirsson, Aðstoðarforstjóri Ölgerðarinnar Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna Gallup Bragi Valdimar Skúlason, partner, texta og hugmyndasmiður Brandenburg Edda Blumenstein, ráðgjafi og doktorsnemi í OmniChannel Guðmundur Arnar Guðmundsson, Akademias
* Með fyrirvara um breytingar. Leiðbeinendur verða um fimmtán talsins. Fleiri leiðbeinendur munu því bætast við á næstu dögum.
Námið byrjar 12. apríl.Kennt er á mánudögum frá kl 13:00 til 16:00 og þriðjudögum frá 9:00 til 12:00. Náminu lýkur þriðjudaginn 11. maí.
Kennsla fer fram hjá Akademias í Borgartúni 23, 3 hæð. Námið er í boði sem staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Námið er 40 klst., þ.e. 5 áfangar, 8 klst. hver áfangi.
Námsmat: Einstaklingsverkefni og markaðshermir (e. marketing simulator).
Námsgjöld: 390.000 kr. (Snemmskráningarverð: 290.000 kr).
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.