24,000 kr.
Um hvað er námskeiðið
Námskeiðið veitir starfsfólki einfaldar og hagnýtar leiðir til að nota líkamann á skynsamlegan hátt, minnka óþarfa álag og styðja við öruggari umönnun.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
skilji hvað felst í réttri líkamsbeitingu og orkusparandi vinnuaðferðum
geti nýtt G.O.L.F. aðferðina við undirbúning og framkvæmd verkefna
þekki grunnreglur um stöðuga fótstöðu, nálægð við verkefnið og kraft frá fótunum
geti valið vinnustöðu sem hentar verkefninu og dregið úr óþarfa álagi
skilji mikilvægi hjálpartækja, samvinnu og virkrar þátttöku skjólstæðings
geti tekið eftir merkjum líkamans og mótað venjur sem styðja við endurheimt og vellíðan
Fyrirkomulag
Námskeiðið er rafrænt og skiptist í átta stutta kafla. Hægt er að horfa á hvern kafla sérstaklega og rifja efnið upp eftir þörfum. Einfaldar útskýringar og verkleg sýnikennsla tengja fræðsluna beint við dagleg verkefni í umönnun.
Leiðbeinandi
Ásgerður Guðmundsdóttir er sjúkraþjálfari, íþróttakennari og jógakennari og með diplómu í jákvæðri sálfræði. Hún er framkvæmdastjóri Vinnuheilsu og hefur í um 25 ár unnið með fyrirtækjum og stofnunum að vinnuvistfræði, heilsueflingu og heilsuvernd á vinnustöðum. Hún hefur jafnframt haldið námskeið og fyrirlestra sem styðja við betri líðan í vinnu og draga úr stoðkerfisálagi.
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar starfsfólki sem sinnir umönnun, stuðningi og daglegri aðstoð. Það getur nýst bæði nýju og reynslumiklu starfsfólki á hjúkrunarheimilum, í heimaþjónustu, á heilbrigðisstofnunum og í félagsþjónustu. Efnið nýtist einnig stjórnendum og öðrum sem koma að öryggi, vinnuumhverfi og fræðslu starfsfólks.
Heildarlengd
Um 20 mínútur
Námskeiðsefni
1 Hvað er rétt líkamsbeiting
Rétt líkamsbeiting, orkusparandi vinnuaðferðir og góðar vinnuvenjur í daglegri umönnun
2 G.O.L.F. aðferðin
Greining verkefnis, opið rými, líkaminn og fólkið sem tekur þátt.
3 Hvað veldur álagi og meiðslum
Uppsafnað álag, fyrstu merki líkamans og óhagstæðar eða endurteknar vinnustöður
4 Grunnreglur góðrar líkamsbeitingar
Undirbúningur, stöðug fótstaða, kraftur frá fótum, stefnubreytingar og samvinna við skjólstæðing
5 Vinnustöður
Fætur í axlarbreidd, beygja í hnjám, annar fótur fram, vinna á öðru eða báðum hnjám og notkun kolls eða stóls
6 Verkleg dæmi úr umönnun
Aðstoð í rúmi, uppstaða og seta, tilfærsla milli rúms og hjólastóls, ganga, klæðnaður og umhirða
7 Hjálpartæki og samvinna
Val og notkun hjálpartækja, þekking á búnaði vinnustaðarins og örugg samvinna
8 Litlar breytingar stór áhrif
Tvær stutter og hagnýtar æfingar og samantekt
akademias@akademias.is
Borgartún 23