Stjórnun lykilverkefna og markmiðasetning með OKR

  • Lærðu einfalda og áhrifaríka aðferðafræði við að skerpa fókus og forgangsraða því sem skiptir máli.

    Á námskeiðinu er  farið ofan í aðferðafræði OKR eða "Objectives & Key Results" sem hefur hjálpað fyrirtækjum á borð við Google, Amazon og Spotify að framkvæma stefnu með skýrum, sýnilegum og mælanlegum hætti.

    Aðferðafræðin nýtur sívaxandi vinsælda og hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.

    Að loknu námskeiði eru þátttakendur með:
    - Góða innsýn í aðferðafræði OKR.
    - Skilning á því með hvaða hætti þau geta innleitt OKR í sínu fyrirtæki.
    - Reynslu af því að fara í gegnum vinnustofu þar sem OKR er sett í ímynduðu   fyrirtæki.

    Fyrir hverja:

    Stjórnendur og starfsmenn sem vilja læra að skerpa fókus í sínum fyrirtækjum með því að setja skýr og mælanleg markmið.

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is,

  • Ólafur Örn Nielsen, aðstoðarforstjóri Opinna Kerfa. Hann hefur starfað við stjórnun og hugbúnaðarþróun í 15 ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri Kolibri og þar áður hjá Form5, WOW air, Eddu útgáfu og Morgunblaðinu.

  • Námið er í 6 hlutum, samtals um tvær og hálf klukkustund og hafa nemendur 12 mánuði til að læra (á þeim hraða og eins oft og þeir kjósa).

  • Fjarnám alltaf í boði, byrjaðu að læra núna!

    Verð 29.900 kr.

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi.

    Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is)



Leita