Tekjustýring og verðlagning

  • Námskeið, í samstarfi við SAF, fyrir þá sem vilja læra verðlagningu og tekjustýringu með sérstaka áherslu á hótel og gististaði.

    Þátttakendur munu öðlast skilning á því hvað drífur tekjuöflun og bókanir, hvaða viðmið byggja skal á við mat á eftirspurn og hvernig hægt er að hámarka tekjur og draga úr áhættu í rekstri.

    Fyrir hverja:

    Námskeiðið er fyrir alla sem koma að stjórnun hótela og gististaða, sölu eða verðlagningu þeirra. Ennfremur fyrir alla þá sem vilja auka hagnýtan skilning á verðlagningu og tekjustýringu.

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is,

  • Stefnir Agnarsson er í framkvæmdastjórn AVIS bílaleigunnar. Hann er með BA í hagfræði og MSc í fjárfestingastjórnun. Stefnir hefur yfir 8 ára reynslu af tekjustýringu, m.a. hjá AVIS, WOW air og Iceland Express.

  • Tæplega þrjár klukkustundir af fyrirlestrum, ásamt ítarefni. Hægt er að horfa og læra hvar og hvenær sem er, ennfremur jafn oft og þátttakendur kjósa í 6 mánuði.

    Á námskeiðinu verður farið yfir:
    - Tekjustýringu og áhrif hennar á rekstur.
    - Grunnhagfræðihugtök, kostnaðarhugtök og hvernig þau tengjast   verðlagningu.
    - Helstu hugtök tekjustýringar (ADR, RevPar Allotment o.s.frv.).
    - Vandamál og lausnir við fráktektir (e. Allotment) og helstu stefnur ræddar.
    - Nýtingu á mismunandi dreifileiðum.
    - Leikjafræði og Nash jafnvægi.
    - Bókunarkúrfur. Hvernig gerum við þær? Hvað ber að varast? Hvernig lesum   við úr þeim og nýtum okkur?
    - Nýjustu þekkingu og tækni tekjustýringar og rýnt inn í framtíðina.

  • Námskeið opnast strax við skráningu, byrjaðu að læra núna!

    Verð 29.900 kr.

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki eiga jafnframt rétt á allt að 3.000.000 kr. árlegum námsstyrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is)



Leita