Stjórnarhættir minni og meðalstórra fyrirtækja

  • Stærstu mistökin sem minni og meðalstór fyrirtæki gera er að hafa ekki stjórn sem hefur skýrt hlutverk og viðeigandi stjórnarmenn.

    Námskeið hannað fyrir stjórnarmenn og framkvæmdastjóra sprotafyrirtækja og minni og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er hliðstætt við alþjóðlegt námskeið sem dr. Eyþór Ívar Jónsson hefur hannað og stýrt í Svíþjóð og Danmörku um árabil.

    Námskeiðið snýst um að gera stjórnarstarf í sprotafyrirtækjum og minni og meðalstórum fyrirtækjum markvirkara. Stjórnir eiga að hafa hlutverk og skapa verðmæti fyrir fyrirtækið. Farið er yfir hlutverk stjórna, ráðgjafarstjórnir og lögbundna stjórnarhætti sem krefjast eftirlitsskyldu. 

    Námskeiðið er útfært sem fjarnámskeið á netinu.

    Fyrir hverja:
    Námskeiðið er nauðsynlegt fyrir alla þá sem koma að rekstri minni og meðalstórra fyrirtækja.

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is

  • Umsjón með námskeiðinu hefur dr. Eyþór Ívar Jónsson. Eyþór hefur í fimmtán stýrt ráðgjafarstjórnarprógrammi í samstarfi við Copenhagen Business School þar sem hann hefur m.a. stýrt ráðgjafarstjórnum fyrir um 200 sprotafyrirtæki. Hann er jafnframt frumkvöðullinn á bak við verkefnið Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum og námslínuna Viðurkenndir stjórnarmenn en á annað hundrað stjórnarmenn hafa útskrifast sem viðurkenndir stjórnarmenn.

  • Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:
    - Hlutverk stjórna
    - Stjórnarháttademanturinn
    - Lögbundnir stjórnarhættir
    - Ráðgjafarstjórnir

  • Fjarnám alltaf í boði, byrjað að læra núna!
    - Námskeiðið er í níu hlutum, samtals um þrjár og hálf klukkustund.
    - Nemendur hafa 6 mánuði til að læra í gegnum netið á þeim hraða og eins oft     og þeir kjósa.
    - Námskeiðagjöld: 29.900 kr. 

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is)

 

Leita