Verkefnastjórnun með Asana

  • Asana er eitt vinsælasta verkefnastjórnunarkerfið í heiminum í dag og er sérstaklega vinsælt á meðal hópa sem eru dreifðir - líkt og allir vinnustaðir eru í dag. Asana hjálpar einstaklingum og hópum að skipuleggja vinnuna sína betur og vera með meiri fókus á markmiðin, verkefnin og þau daglegu störf sem hjálpa fyrirtækjum að vaxa.

    Asana hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum, hópum og þvert á hópa og einstaklingum.

    Á námskeiðinu er farið yfir grunnþætti Asana og hvernig það er byggt upp, með fókus á að nýta Asana sem samskiptatól svo hægt sé að fækka fundum. Í lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og færni til að byrja strax að nýta sér kerfið. Fleiri og fleiri fyrirtæki eru farin að nota Asana í sínum daglega rekstri, fyrst og fremst vegna þess hversu sveigjanlegt og notendavænt kerfið er.

    Á meðal fyrirtækja sem nota Asana eru m.a. Nova, Icelandair og Kolibri en erlendis Uber, Harvard University, GE, Deloitte, Zappos, Google, AirBnB, IDEO, PayPal og Facebook.

    Fyrir hverja:

    Alla þá sem koma að einhverju leiti að verkefnastýringu í sínu daglega starfi og vilja læra á þetta sveigjanlega verkfæri til að skipuleggja og halda utanum verkefni.

    Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur Arnar, gudmundur@akademias.is,

  • Sigurhanna Kristinsdóttir, Delivery Lead hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Gangverk.

    Hún hefur starfað við verkefnastýringu síðastliðin 15 ár, og síðustu 10 ár í hugbúnaðarverkefnum hjá Gangverki, Icelandair, Kolibri, Nova og Hugsmiðjunni. Sigurhanna hefur mikla reynslu af Asana, bæði í sínum störfum og í sínu persónulega lífi.

  • Námskeið á netinu í 10 hlutum og um 3 klukkustundir. Skráning gefur aðgang að náminu í 12 mánuði og hægt er að horfa og læra eins oft og fólk kýs á tímabilinu.

    Farið verður yfir: 
    - Uppbygging Asana.
    - Aðgangstýringu að verkefnum og verkþáttum.
    - Þau mismunandi sniðmát (e. template) sem Asana býður upp á sem henta       mismunandi verkefnum.
    - Hvernig verkefni eru skipulögð innan Asana.
    - Hvernig verkefnum er fylgt eftir innan teymis og milli teyma/deilda.
    - Hvernig hægt er að skoða framvindu verkefna og gefa stöðu og skýrslur.
    - Hvernig nýta má Asana til að plana sína eigin vinnu og forgangsraða daglega.

  • Námskeið opnast strax við skráningu, byrjaðu að læra núna!

    Námskeið á netinu í 10 hlutum og um 3 klukkustundir. Skráning gefur aðgang að náminu í 12 mánuði og hægt er að horfa og læra eins oft og fólk kýs á tímabilinu.

    Verð 29.900 kr.

    Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Vinnumálastofnun styrkir jafnframt skjólstæðinga sína um 75% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki eiga jafnframt rétt á allt að 3.000.000 kr. árlegum námsstyrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is)



Leita